ESB hrifsar stöðugt til sín völd yfir fjármálafyrirtækjunum

Evrópusambandið hefur með EES-samningnum verið að taka til sín meiri völd yfir EES-löndunum. Þau hafa reynt að sinna „hagsmunavörslu“ og hafa áhrif á tilskipanirnar án árnagurs. Þegar ESB setti nýja stofnun yfir „evrópsk fjármálafyrirtæki“ (les ESB og EES-fyrirtæki) kvörtuðu löndin bréflega án árangurs. Árið 2023 setti Alþingi lög sem fjalla um „sjálfbærar fjárfestingar“ upp úr kraðaki af tilskipunum. Meira að segja lífeyrissjóðir þurfa að fara að leita að „sjálfbærum verkefnum“ fyrir sína starfsemi!

Í maí 2017 stimplaði Alþingi nærri heilan tug EES-tilskipana og setti i lög https://www.althingi.is/lagas/nuna/2017024.html (lög nr 24/2017). Þar segir

Tilgangur laga þessara er að lögfesta evrópskt (les ESB) eftirlitskerfi á fjármálamarkaði…“

Það voru hvorki meira né minna en 4 stofnanir sem fengu valdið: EBA, EIOPA, ESMA , ESRB. Það var ekkert nýtt við að fá haug af tilskipunum en það sem var nýtt var að var að ESA, eftirlitsstofnunin sem fylgist meða að EES-löndin hlýði tilskipununum, fékk aukið hlutverk og nýtt vald. ESA og EFTA-dómstólinn (sem dæmir Noreg, Ísland og Liechtenstein til að hlýða tilskipununum) fengu með lögunum aðfararhæft dómsvald

Ákvarðanir ESA samkvæmt lögum þessum eru aðfararhæfar, sem og dómar og úrskurðir EFTA-dómstólsins“

Með þessum lögum var stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands brotin.

Sameiginlega EES-nefndin, þar sem Ísland á sæti þó að við höfum engin áhrif á tilskipanirnar, var sett út fyrir samþykktarferlið. ESA, sem er „sjálfstæð“ (þ.e. hlýðir aðeins valdakerfi EES/ESB) og Ísland hefur enga stjórn á, er sett inn til að koma tilskipunum ESB í framkvæmd hér. Svipaða aðferð á að nota við að ná orkumálum undir beint vald ESB: Orkumálaskrifstofa ESB (ACER) sendir valdsboðin til ESA sem framsendir þau til Íslands án tafar.

EES-ríkin mótæltu valdahrifsisnu bréflega

…Fjár­málaráðherr­ar þeirra þriggja ríkja sem aðild eiga að EES-samn­ingn­um, Nor­egs, Íslands og Liechten­stein, hafa mót­mælt áform­um Evr­ópu­sam­bands­ins um að gera breyt­ing­ar á fyr­ir­komu­lagi ákv­arðana­töku á vett­vangi yfirþjóðlegs fjár­mála­eft­ir­lits sam­bands­ins sem rík­in hafa geng­ist und­ir. Vísað er í bréf þess efnis frá ráðherr­un­um á norska frétta­vefn­um Abcnyheter þar sem óskað sé eft­ir því að fallið verði frá áform­um Evr­ópu­sam­bands­ins um að færa mik­il­vægt ákv­arðana­vald frá eft­ir­lits­stjórn fjár­mála­eft­ir­lits­ins, sem EES-rík­in eiga aðkomu að án at­kvæðarétt­ar, til nýrr­ar fram­kvæmda­stjórn­ar eft­ir­lits­ins sem rík­in eigi enga aðkomu að… Fram kem­ur enn­frem­ur í bréfi ráðherr­anna að erfitt sé að sjá hvernig hægt verði að viðhalda jafn­vægi á milli EFTA- og ESB-stoðar­inn­ar (s.k. EFTA-stoð er Noregur, Ísland og Liechtenstein) nema EES-rík­in hafi aðkomu að fyr­ir­hugaðri fram­kvæmda­stjórn fjár­mála­eft­ir­lits sam­bands­ins. Einnig er kallað eft­ir því að út­víkk­un á beinu eft­ir­liti fjár­mála­eft­ir­lits­ins verði ekki um­fram það sem inn­lend­ar stofn­an­ir geti sinnt… Þá er sömu­leiðis áréttað í bréf­inu að þegar hafi verið komið á kerfi miðlægs eft­ir­lits og ákv­arðana­töku inn­an tveggja stoða kerf­is­ins. Fyr­ir­ætlan­ir um frek­ara framsal vald­heim­ilda frá EES-ríkj­un­um til ESA á sviði fjár­mála­eft­ir­lits kunni að leiða til flók­inna stjórn­skipu­legra og stjórn­mála­legra vanda­mála sem erfitt gæti reynst að finna lausn­ir á…“

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/05/09/mikilvaeg_vold_tekin_ut_fyrir_sviga/

Þessar bréfaskriftir voru að sjálfsögðu árangurslausar eins og önnur „hagsmunagæsla“ gagnvart EES-samningnum

Lög um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar voru sett 2023 (nr. 25 12. maí) og miða að því að setja hömlur á fjárfestingar nema þær sem teljast „sjálfbærar“ svo sem vindmyllur, sólarpanela, rafeldsneyti, gerjunarmetan og fleira slíkt sem er óarðbært og þarf lögboð um til þess að lánveitendur og fjárfestar setji fé sinna umbjóðenda í. Lífeyrissjóðir landsmanna eru nú líka að sökkva í þetta fen.

https://www.althingi.is/lagas/nuna/2023025.html

Vestanhafs stofnuðu bankarnir Net Zero Banking Alliance (NZBA), bankasamtök kolefnishlutleysis. Þau er nú að leysast upp, stóru bankarnir eru að yfrigefa samtökin hver af öðrum.

https://www.downtoearth.org.in/climate-change/green-banks-coalition-goes-bust-biggest-american-fossil-funders-exit-net-zero-alliance

Öll lög og reglugerðir um „kolefnishlutleysi“ eða „sjálfbærni“ eru annaðhvort óþörf aða skaðleg. Hreinsa þarf úr íslenska lagasafninu allt sem komið hefur frá ESB vegna EES inn í íslensk lög um „loftslagsmál“ og afleiddar kvaðir.

This entry was posted in Bankar, EES, Loftslag, Stjórnarskrá. Bookmark the permalink.