FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ
Stjórnarráðshúsinu
Frjálst land, félagasamtök
Reykjavík 2. apríl 2020
Vísað er til fyrirspurnar yðar frá 26 febrúar sl. þar sem spurt er hvort fjárfestar í ESB muni sitja við sama borð og íslensk fyrirtæki í almannaeigu við úthlutun nýtingarréttar fallvatna og jarðvarma og við fyrirskipaða reglulega endurnýjun nýtingar orkuauðlinda.
Í fyrirspurninni er vísað til rökstudds álits Eftirlitsstofnunar EFTA, dags. 7. maí 2015, þar sem stofnunin komst að þeirri niðurstöðu að úthlutun afnotaréttar á fallvatnsréttindum og jarðvarma á opinberu forræði uppfylli ekki skilyrði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 123/2006/EB um þjónustu á innri markaðnum (þjónustutilskipunin) og til vara 31. gr. EES-samningsins um staðfesturétt. Einnig er vísað til þess í fyrirspurninni að samkvæmt þingmálaskra standi til að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum er varða nýtingu orkuauðlinda á opinberu forræði (nýtinarleyfi) vegna aðvörunar eftirlitsstofnunarinnar.
Við skoðun málsins hafa komið upp rökstuddar efasemmdir um að þjónustutilskipunin eigi við um raforkuframleiðslu. Íslensk stjórnvöld hafa því ákveðið að fresta fyrirhuguðum lagabreytingum uns betri visssa er fengin fyrir því hvaða þjóðréttarlegu skuldbindingar hvíla á íslenska ríkinu að þessu leyti. Frumvarpið sem vísað er til í þingmálaskrá verður því ekki lagt fram á Alþingi á þessum vetri.
Fyrir hönd ráðherra
Hafdís Ólafsdóttir Ásthildur Valtýsdóttir
——————————————————————————————
(fyrirspurnin er hér að neðan)
Frjálst land
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Fyrirspurn um úthlutun nýtingarréttar orkuauðlinda 26.2.2020
Eftirlitsstofnun EES-samningsins, ESA, sendi íslenskum stjórnvöldum „formlega aðvörun“ 12.3.2014 (skjal no 660 969) og þann 7.5.2015 „rökstutt álit“ (Case no 69674) um að íslensk stjórnvöld brytu EES-samninginn við úthlutun nýtingarréttinda fallvatnsorku og jarðvarmaorku.
Samkvæmt ESA á að úthluta nýtingarrétti orkuauðlinda i opnu valferli þar sem jafnræðis sé gætt milli fjárfesta í ESB/EES og á grundvelli hlutlægra skilyrða fyrir vali á nýtingarleyfishafa. Tryggja skal að nýtingartími sé ekki lengri en þörf krefur fyrir virkjunaraðila að fá fjárfestingu til baka ásamt hæfilegum arði af fjárfestingunni. Ekki má veita rétthafa forgang til endurnýjunar að þeim tíma liðnum.
Þessi valdsboð þýða að fyrirtæki í ESB fá samskonar aðgang að helstu orkuauðlindum landsins, fallvötnum og jarðhitasvæðum, og fyrirtæki í almannaeigu ríkis og sveitarfélaga hafa hingað til fengið, og við fyrirskipaða endurnýjun nýtingarleyfanna fá ESB-fjárfestar rétt til að leggja undir sig orkuauðlindir sem nú eru nýttar af fyrirtækjum í almannaeigu.
Þingmálaskrá boðar Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum er varða nýtingu orkuauðlinda á opinberu forræði (nýtingarleyfi) vegna aðvörunar ESA.
Fyrirspurnin:
Munu fjárfestar í ESB sitja við sama borð og íslensk fyrirtæki í almannaeigu við úthlutun nýtingarréttar fallvatna og jarðvarma og við fyrirskipaða reglulega endurnýjun nýtingarréttar orkuauðlindanna?
Virðingarfyllst
f.h. Frjáls lands
Sigurbjörn Svavarsson Friðrik Daníelsson